Hrossaræktunin Miðja
5. Apríl
Sælt veri fólkið. Nú hef ég loksins sest niður við tölvuna og skrifað hér inn einhverjar fréttir, þó fyrr hefði verið. Reyndar er er ekki svo langt síðan að klárað var að gera við höndina á mér og hún útskrifuð af Landspítalanum, þannig að það má segja að ég hafi smá málsvörn mér til hagsbóta. Þessi viðgerð er búin að taka þó nokkurn tíma, fyrri aðgerðin var gerð 16. desember og sú seinni 24. febrúar. Nú er bara að horfa fram á við og vona að batinn verði svo til hundraðprósent.
Þar sem ég er bara ný farin að komast á hestbak hefur Össi verið duglegur að hreyfa hrossin í vetur, en það eru þau Líf, Mósi og Tildra. Tildra er undan Þrennu frá Svalbarði og IS2003157004 Ál frá Sauðárkróki sem er 1.V stóðhestur með 8.20 í aðaleinkunn, því miður er ekki búið að bæta inn dómnum hans Áls á síðuna hans. Lilja okkar í Gusti frumtamdi Tildru fyrir okkur sem og tvær aðrar Álsdætur sem faðir minn á. Lilja var almennt ánægð með Álsdæturnar, tvær þeirra voru meira öruggari með sig en sú þriðja sem var meira fiðrildi en þó aldrei til neinna vandræða.
Tildra er skemmtileg hryssa og er allur gangur laus. Hún er hrekklaus en finnst óskaplega gaman að bruna það er eins og hún sé að að missa af einhverju og hún verði að ná á réttum tíma. Stefnt er á að Tildra fari í síðsumarsýningu og nú er bara að bíða og vona að svo verði.
Þann 20. mars komst ég loksins á hestbak í fyrsta sinn í vetur. Mikið svakalega var gott að setjast í hnakkinn og finnast mann vera frjáls. Ég átti von á því að fá alveg svakalega strengi sem varð ekki en ég fann aftur á móti að höndin er ekki komin með fullan styrk og var ég frekar þreytt í hendinni eftir reiðtúrinn, en skítt með það er get þó alla veganna farið í reiðtúr núna.
Á laugardaginn tengdum við tölvuna við sjónvarpið og nutum þess að horfa á Stóðhestaveisluna heim í stofu á 37" skjá. Það hefði reyndar verið gaman að vera á staðnum og fá Stóðhestaveisluna beint í æð. Við vorum töluvert hrifin af Arði frá Brautarholti, Aroni frá Strandarhöfði, Álfi frá Selfossi, Fláka frá Blesastöðum, Frosta frá Efri-Rauðalæk, Héðni frá Feti, Klæng frá Skálkoti, Óm frá Kvistum og Stíganda frá Stóra-Hofi.
Um kveldið fórum við svo á Ístöltið og horfðum góð hross þar. Þar fannst okkur bera af Nátthrafn frá Dallandi hjá Halldóri, Kjarnorka frá Kálfholti hjá Sigga Sig og hún Gola frá Þjórsárbakka hjá Lenu Zielenski, einnig var Dalur frá Háleggsstöðum verulega flottur hjá Barböru Wenzl.
Á sunnudagsmorgunn var ferðinni heitið austur í Landeyjar til Rikka og Siggu. Fórum við í þeim erindagjörðum að sjá Fjarka og Gæsku. Eftir smá kaffispjall fór Rikki með okkur út í beitarhólf til folaldsmeranna þar sem við sáum hana Gæsku okkar sem var ekki alveg til í að spjalla við okkur fyrst um sinn en kom þó að lokum og heiðraði okkur með nærveru sinni.
Gæska

Gæska

Gæska
Gæska okkar er fylfull við Aris frá Akureyri
Rikki fræddi okkur um merarnar sínar og við hverjum þær væru fylfullar. Þarna á bæ er fullt af flottum og efnilegum merum og tryppum sem maður myndi nú ekki slá hendinni á móti að eiga. Eftir hagaferðina var haldið að stóðhestahólfinu, þar voru nokkrir vel ættaðir, efnilegir og fallegir folar undan Töfra frá Kjartansstöðum, Orra frá Þúfu, Þyt frá Neðra-Seli og Grun frá Oddhóli. Að lokinni graðtitta skoðun var haldið heim að bæ þar sem fleirri hrossaeigendur voru komir til þess að líta á sína gripi. Röltum við með þeim út á tún þar sem folöldin voru og þar eiga Rikki og Sigga nokkra flotta gripi, þar á meðal brúnan Töfrason og jarpan Kerúlfson. Ég varð að smella mynd af verðlauna hrútinum þeirra Rikka og Siggu, flottur hrútur eins og sjá má.
Verðlauna hrúturinn á 
    Syðri-Úlfsstöðum
Að lokinni folaldaskoðun og sauðfjárskoðum var haldið heim í hesthús og Rikki lagði á Fjarka og sýndi okkur klárinn. Fjarki er bara að koma vel út, hann er fallegur og snyrtilegur í reið og erum við bara ánægð með árangurinn. Auðvitað var myndavélin tekin með og smellt af nokkrum eins og sjá má.
Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki

Fjarki
Fjarki er frábær fjölskyldu hestur og mjög þægilegur í reið. Hann er traustur, öruggur og heilsteyptur í höfðinu og gerir allt sem hann er beðinn um.
Stefnt er með Fjarka í fullnaðardóm í sumar en hann er búinn að fá byggingadóm upp á 8.22. Það væri nú ekki leiðinlegt ef hann næði fyrstu verðlaunum í fullnaðardómnum, við verðum bara að vona að svo verði en það á nú allt eftir að koma í ljós og við látum okkur dreyma þangað til.
Þann 17. apríl stefnum við á að fara norður á Njálsstaði og kíkja á hrossin okkar þar sem og að heilsa upp á pabba, Diddu og Alexöndru sem er nú búin að vera hjá okkur núna yfir páskahátíðina. Alexandra er að fara heim í sveitina á morgun og eru litlu dýrin okkar að koma heim til okkar eftir páskafrí í sveitinni hjá pabba sínum og Signý.
Í dag fóru ég og Alexandra saman á hestbak, Össi ætlaði að koma með okkur en tók eftir því að það vantaði eina skeifu hjá henni Tildru svo ekkert varð úr reiðtúr hjá honum. Líf var bara flott hjá Alexöndru, hreingeng og tignarleg. Það var samt smá æsingur í þeim Líf og Mósa en ekkert til að kvarta undan, meira svona hvort þeirra yrði fyrr að koma sér heim þau eiga það til að keppa sín á milli og þá þurfum við knaparnir bara að hafa meira fyrir því að halda þeim góðum.
Jæja læt þetta gott heita í bili og hafið það gott þangað til næst.